FW Large Fish Formula 600g
Byltingakennt fóður frá New Life Spectrum. Einfaldlega
vandaðasta og besta fiskafóðrið í heiminum! Aðeins er notast við
hágæðahráefni á borð við krill-átu og síld, frekar en hefðbundið
fiskimjöl eins og flestir aðrir framleiðendur, til að tryggja
hámarksnæringu og hreysti. Hvort sem um er að ræða samfélagsbúr eða
sérhæft siklíðubúr uppfyllir New Life
Spectrum þarfir
allra fiska - kjötæta, grænmetisæta og alæta. Fjórir náttúrulegir
litaukar í fóðrinu, m.a. spirúlína þörungur, tryggja að fiskurinn
skarti fegurstu liti og viðbættar fiskiolíur og hvítlaukur tryggja
bestu heilsu og sjúkdómsviðnám. Engin hormón eru notuð í fóðrinu.
Reyndu og þú sérð mun innan tíu daga!!
Leuleupi fyrir og eftir New Life Spectrum.
Large Fish Formula er
fyrir alla stærri fiska ss. afríku- og amerríkusiklíður. Þótt margar
þessara siklíða séu grænmetis- og þörungaætur þá éta þeir einnig mikið
af vatnalífverum til að fá nauðsynleg prótein. Búrlíf tryggir yfirleitt
ekki nægt framboð af þörungum til að mæta þessari þörf en samsetning New Life Spectrum Large Fish Formula gerir það hins vegar og svo um munar!
Stærð og lögun: 3 mm hægsökkvandi kögglar.
Magn: 600 g.
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|