FW Thera A Large Fish Formula with Extra Garlic 150g
Byltingakennt fóður frá New Life Spectrum. Einfaldlega
vandaðasta og besta fiskafóðrið í heiminum! Aðeins er notast við
hágæðahráefni á borð við krill-átu og síld, frekar en hefðbundið
fiskimjöl eins og flestir aðrir framleiðendur, til að tryggja
hámarksnæringu og hreysti. Hvort sem um er að ræða samfélagsbúr eða
sérhæft siklíðubúr uppfyllir New Life
Spectrum þarfir
allra fiska - kjötæta, grænmetisæta og alæta. Fjórir náttúrulegir
litaukar í fóðrinu, m.a. spirúlína þörungur, tryggja að fiskurinn
skarti fegurstu liti og viðbættar fiskiolíur og hvítlaukur tryggja
bestu heilsu og sjúkdómsviðnám. Engin hormón eru notuð í fóðrinu.
Reyndu og þú sérð mun innan tíu daga!!
Leuleupi fyrir og eftir New Life Spectrum.
Thera A Large Fish Formula with Extra Garlic er
sérfóður fyrir alla stóra búrfiska. Thera A er með viðbættum
hvítlauk (sem inniheldur allicín) og hentar einkar vel þegar fiskur er
undir álagi td. í sóttkví, eftir meðalagjöf og fyrir seiði fyrir og
eftir að þau eru færð milli búra. Hvítlaukurinn styrkir ónæmiskerfið og
ver fyrir ágangi sníkjudýra. Thera A er ekki lyf og því ætti að sinna
meðalagjöf áfram.
Þótt margir fiskar séu grænmetis- og
þörungaætur þá éta þeir einnig mikið af vatnalífverum til að fá
nauðsynleg prótein. Búrlíf tryggir yfirleitt ekki nægt framboð af
þörungum til að mæta þessari þörf en samsetning New Life Spectrum Thera A Large Fish Formula gerir það hins vegar og svo um munar!
Stærð og lögun: 3 mm hægsökkvandi kögglar.
Magn: 150 g.
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|