Hahn’s Macaw (Zara) – SELD!

50.000 kr.

Hansarinn (Ara nobilis nobilis) nýtur mikilla vinsælda, enda fjörmikill kelari og bráðgreindur í þokkabót. Hann hefur heilmikla talgetu og auðvelt er að kenna honum kúnstir. Þetta er ákveðinn miðfugl með mikla leikþörf. Nokkuð hljóður en getur gefið frá sér hávær köll ef honum er ekki kennt að tala. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar litið og þarf góða næringu þ.e. gott úrval fræja, pálmahnetur, eggjafóður og auðvitað grænmeti og ávexti. Pantanir í síma 699 3344. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/hahn_s_macaw.html

Gala Messing

Hún Zara er 12 ára handmataður hansari innfluttur frá Bretlandi. Hún talar heilan helling og hlær hrossahlátri á köflum. Hún er ljúf og fín, en tekur karlmenn fram yfir konur, enda eigandinn af því kyni. Hún vill gjarnan fá að vera með í því sem eigandinn er að gera og situr prúður á öxl á meðan. Zara er til sölu vegna tímaleysis eiganda. Henni fylgir gyllt Gala búr frá Ferplast.

Stærð: 30 cm.
Lífaldur: 30-40 ár.
Verð: 50.000 kr með búri - SELD!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg