Congo African Grey (Peppe) – SELDUR!

240.000 kr.

ongó grápáfinn (Psittacus erithacus erithacus) nýtur fádæma vinsælda, enda með afbrigðum klár og klókur. Hann getur náð orðaforða allt að þúsund orðum og lært að tjá langanir og hugsanir. Þetta er frekar hlédrægur fugl að eðlisfari og þarf natni til að hann verði félagslyndur. Nokkuð hljóður og dagfarsprúður. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar nokkuð og þarf góða næringu þ.e. fjölbreytt úrval fræja og pálmahnetur, og auðvitað grænmeti og ávexti. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/congo_african_grey.html

Peppe er 4 ára handmataður kyngreindur CAG, fluttur inn frá Skotlandi. Hann er stór og myndarlegur og fallegur í fiðri. Fuglinum fylgir nýtt Haiti búr frá Montana Cages og ferðabúr. Peppe er afbragðsgóður talfugl og kjaftar á honum hver tuskan. Hann kann ýmis "tricks" líka. Peppe hefur verið hjá sama eiganda frá því að hann var 3ja mánaða gamall og er til sölu vegna ósættis við eiginkonu eiganda síns. Virkilega fínn fugl!
Stærð: 33 cm.
Lífaldur: 50-70 ár.
Verð: 240.000 kr með búri og ferðabúri - SELDUR!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg