Litoria aurea L
Gullbjöllu trjáfroskurinn (Litoria aurea) er algengur og snotur trjáfroskur frá Ástralíu. Hann er allajafna ljósgrænn á lit með gylltum og brúnum flekkjum. Froskurinn vill vera í röku umhverfi (60-70% raki) með aðgang að hreinu vatni í grunnri skál. Botnlag má vera mold, gróf en slétt möl, börkur eða mosi. Vill hafa felustaði ss. steina eða viðarbúta og greinar til að klifra í. Þess vegna er gott að búrið sé hátt, enda froskurinn oft uppi í greinum. Þetta er auðveldur byrjendafroskur með heilmikinn persónuleika. Er sýnilegri að degi til en frændi hans White's trjáfroskurinn. Nærast á krikkets en einnig mjölormum, möðkum og öðrum skordýrum. Taka einnig vandað þurrfóður ss. JurassiDiet Frog & Newt og fóðurtöflur. Verður um 11 cm langur (kvendýrið er nokkuð stærra en karlýrið). Eiga til að éta á sig gat þ.a. það þarf að forðast offóðrun. Geta náð 20 ára aldri í búrum.
Tegund: Golden Bell Frog L
Stærð: 6-7 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|