Striped Rocket Frog M
Skotfroskurinn (Litoria nasuta) er nokkuð algengur og straumlínulagaður froskur sem finnst víða í Ástralíu. Hann er miðlungsstór, röndóttur með ljóst litarhaft. Snoppan er oddhvöss. Froskurinn vill vera í röku umhverfi (60-70% raki) með aðgang að hreinu vatni og jafnvel helst sundvatni. Botnlag má vera mold, gróf en slétt möl, börkur eða mosi. Vill hafa felustaði ss. steina eða viðarbúta og greinar til hoppa upp í. Þetta er kröftugur hoppari með langa tungu til veiða. Nærast aðallega á kribbum en einnig mjölormum, möðkum og öðrum skordýrum. Taka einnig vandað þurrfóður ss. JurassiDiet Frog & Newt og fóðurtöflur. Kvendýrið er stærra en karldýrið - verða 5 cm löng.

Tegund: Striped Rocket Frog M
Stærð: 3 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 2-4 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
| Þyngd | 0.00 kg |
|---|




