Blue & Gold Macaw (Kókó) – SELDUR!

350.000 kr.

Bláguli arinn (Ara ararauna) nýtur mikilla vinsælda, enda stór og fjörmikill stríðnispúki. Hann er bráðgreindur og hefur heilmikla talgetu og auðvelt er að kenna honum kúnstir. Þetta er ákveðinn fugl með mikla leikþörf. Hann er nokkuð hljóður en getur gefið frá sér mjög hávær öskur ef honum leiðist eða er vanræktur. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar litið og þarf góða næringu þ.e. gott úrval fræja, pálmahnetur, eggjafóður og auðvitað grænmeti, ávexti og margs konar mannmat. Pantanir í síma 699 3344. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/blue___gold_macaw.html

Kókó er rúmlega tvítugur arnpáfi innfluttur frá Hollandi. Hann hefur ekki verið formlega kyngreindur en er greininlega karlkyns. Hann er virkilega glæsilegur fugl, stór og stæltur, og talar töluvert. Honum fylgir stórt búr frá Kings Cages, næturbúr og standur. Ljúfur fugl og skemmtiegur. Til sölu vegna breyttra aðstæðna.

Stærð: 86 cm.
Lífaldur: 70-100 ár.
Verð: 350.000 kr ásamt 2 búrum. VISA raðgreiðslur í boði til 3ja ára - SELDUR!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg