Hahn’s Macaw (Lócó) – SELDUR!

80.000 kr.

Hansarinn (Ara nobilis nobilis) nýtur mikilla vinsælda, enda fjörmikill kelari og bráðgreindur í þokkabót. Hann hefur heilmikla talgetu og auðvelt er að kenna honum kúnstir. Þetta er ákveðinn miðfugl með mikla leikþörf. Nokkuð hljóður en getur gefið frá sér hávær köll ef honum er ekki kennt að tala. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar litið og þarf góða næringu þ.e. gott úrval fræja, pálmahnetur, eggjafóður og auðvitað grænmeti og ávexti. Pantanir í síma 699 3344. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/hahn_s_macaw.html

Hann Lócó er 10 ára handmataður og kyngreindur hansari fæddur á Íslandi (7. sept. 2006 á Akranesi). Hann talar töluvert og getur verið þrælskemmtilegur en líka erfiður þegar sá gállinn er á honum. Honum fylgir notað búr frá Avian Adventures og töluvert af dóti. Lócó þarf ákveðinn eiganda sem er tilbúinn að eyða tíma í hann og þjálfa hann betur. Lócó hefur verið á Harrisons þurrfóðri en líka á fræjum. Hann er meira fyrir karlmenn en konur.

Stærð: 30 cm.
Lífaldur: 30-40 ár.
Verð: 80.000 kr með búri og dóti - SELDUR!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg