Dyeing Poison Frog ‘Blue’ M

34.790 kr.

Blái pílufroskurinn (Dendrobates tinctorius azureus) er bráðfallegur eiturörvafroskur frá  Sipaliwini sléttunum í S-Súrinam. Eftirsóttur vegna litarins - skærblár með svörtum freknum. Kallaður okopipi af innfæddum.  Kvendýrið einokar karldýr, slást innbyrðis um hann. Kvendýrið hrygnar í litlum polli og karldýrið frjóvgar eggin. Um 5-10 afkvæmi fæðast og karldýrið gætir þeirra. Halakörturnar nærast á pöddulífi í pollunum og hverja aðra ef ekkert æti er til staðar. Froskurinn nærist á skordýrum ss. maurum, krybbum, ávaxtaflugum og möðkum. Þurfa að vera í röku búri með mosa og plöntum og aðgengi að hreinu vatni. Þetta eru næturdýr eins og aðrir froskar. Karldýrið verður 5 cm langt en kvendýrið aðeins stærra. Lifa upp undir 10 ár í búrum. Ræktaðir í EU.

Tegund: Blue Dyeing Poison Frog M
Stærð: 2-3 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Umönnunarleiðbeiningar.

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg