2.190 kr.

SKU: 06453 Flokkur:

Tígrisbótían (Syncrossus hymenophysa) er falleg sniglaæta frá Indónesíu sem þekkist á skáböndunum og græna litnum. Hún verður um 21 cm löng og er nokkuð fyrirferðarmikil og grimmlynd. Hængurinn er spengilegri en hrygnan og bæði eru með beinnibbur undir augun sem þau geta sprett út til varnar. Þess vegna er ekki hyggilegt að halda á þeim með berum höndum! Þarf góða felustaði til að troða sér í, einkum sendinn botn. Geta verið stakir en plumma sig best í pörum. Aðalfæðan eru sniglar og fóðurtöflur. Má einnig gefa grænmeti ss. gúrkur. Þola illa lyfjagjöf af því að þær eru hreisturslausar og best að nota saltmeðferðina ef sjúkdómar koma upp. Hentar aðallega með stærri fiskum.
Tegund: Tiger/Green Tiger Loach M
Stærð: 6-7 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg