590 kr.

SKU: 00424 Flokkur:

Svarta kúlíbótían (Pangio oblonga) er falleg ormlaga sniglaæta frá Indónesíu. Hún verður um 8 cm löng. Hún er fremur róleg að eðlisfari og felugjörn og hentar því aðeins með rólegum fiskum og botnfiskum. Hængurinn er spengilegri en hrygnan og bæði eru með beinnibbur undir augun sem þau geta sprett út til varnar. Þess vegna er ekki hyggilegt að halda á þeim með berum höndum! Þarf góða felustaði til að troða sér í, einkum sendinn botn. Aðalfæðan eru sniglar og fóðurtöflur og hvers kyns matarleifar. Þola illa lyfjagjöf af því að þær eru hreisturslausar og best að nota saltmeðferðina ef sjúkdómar koma upp. Þeir eiga að vera ekki færri en þrír saman í búri og geta stundum fjölgað sér. Fela sig iðulega í botnlaginu og er nær ómögulegt að veiða þá aftur.
Tegund: Black Kuhli/Java Loach M/L
Stærð: 5-6 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg