2.390 kr.

Blái regnboginn (Melanotaenia lacustris) er afar skrautlegur regnbogafiskur frá Kutubu vatnasvæðinu á Papúa Nýju-Gíneu. Hængurinn verður býsna laglegur á fengitímanum. Þetta er hópfiskur sem hrygnir auðveldlega í heimabúrum og dafnar best með gróðri. Fallegt gróðurbúr með 20 regnbogafiskum er ægifögur sjón. Þessum lyndir vel við aðra rólega fiska og er auðveldur byrjunarfiskur. Hængurinn verður 10 cm en hrygnan 8 cm. Kemur úr mjög alkalísku vatni pH 9-9,5. Þetta er hoppari þ.a. búrið þarf að vera vel lokað.
Tegund: Blue/Turquoise/Lake Kutubu Rainbowfish S/M
Stærð: 4-5 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg