2.390 kr.

Eldmunninn (Thorichthys meeki) er vinsæl siklíða í blönduðu búri. Henni lyndir vel við aðra af sömu tegund, nema á hrygningartímanum þegar hængurinn vill helga sér svæði og verja. Þetta er falleg og tignarleg siklíða sem getur gengið með hraðsyntum torfufiskum ss. börbum og tetrum. Hún verður um 17 cm löng og kemur af vatnasvæði Usumacinta fljóts, vatnasvæði Belize fljóts og nálægt Progreso í Mexíkó, Gúatemala og Belís. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/thorichthys_meeki.html
Tegund: Firemouth Cichlid S
Stærð: 2-3 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg