2.590 kr.

SKU: 22783 Flokkur:

Cuban Limia gotfiskurinn (Limia vittata) kemur frá Kúbu. Þetta er skemmtilegur byrjendafiskur og auðveldur á alla vegu. Hann kann best við sig í hópi nokkrir saman - og skartar sínu fegursta ef hrygnur eru með í hópnum. Hann kann best við sig í gróðurbúrum og nærist mest á grænfóðri og skordýrum. Verður um 8 cm langur. Hængurinn er litmeiri og fær herðakistil með aldrinum. Meðgangan er 6-8 vikur og getur hrygnan eignast allt að 50 seiði í einu goti. Þola líka ísalt vatn. Hitastig 10-25°C og sýrustig (pH 6-8). Kyn seiða ræðst að einhverju leiti á hitastígi. Því hærri hiti þeim mun hærra hlutfall af hrygnum í gotinu.
Tegund: Cuban Limia M
Stærð: 3-4 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg