11.190 kr.

SKU: 28512 Flokkur:

Silfur aróvanan (Osteoglossum bicirrhosum) er ferskvatnsfiskur úr Amasón-fljótinu í S-Ameríku. Hann getur orðið um 100 cm langur og þarf því mjög stórt búr og með góðum hreinsibúnaði. Þetta er glæsilegur fiskur sem syndir hratt um í ætisleit. Aróvanan er hönnuð til að veiða bráðina sína og getur opnað kjaftinn vel á gátt (sjá mynd) þ.a. hún getur ekki verið með smærri fiskum í búri. Hún þarf mjög hreint og súrefnisríkt vatn og vel lokað búr, enda prýðisgóður stökkvari. Villtir!
Tegund: Silver Arowana S/M - Wild.
Stærð: 8-10 cm

Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg