Splash-backed Poison Frog – Red L

42.990 kr.

Rauðhryggs pílufroskurinn (Adelphobates galactonotus 'Red') er bráðfallegur eiturörvafroskur frá  Brasilíu. Eftirsóttur vegna litarins - svartur undir en sæblár skellur yfir bak og höfuð. Kvendýrið einokar karldýr og parar sig og kemur hrognunum fyrir í bleytu á jörðinni. Karlinn flytur síðan halakörturnar, eina í einu, í vatnspoll hátt í trjám þar sem þær stækka. Halakörturnar nærast á pöddulífi í pollunu og hverja aðra ef ekkert æti er til staðar. Froskurinn nærist á skordýrum ss. maurum, krybbum, ávaxtaflugum og möðkum. Þurfa að vera í röku búri með mosa og plöntum og aðgengi að hreinu vatni. Þetta eru næturdýr eins og aðrir froskar. Verða 3-4 cm löng. Það er mjög erfitt að kyngreina þessa tegund. Mörg litarafbrigði eru til af Dendrobates galactonotus froskategundunni. Má ekki vera í of heitu umhverfi - helst á bilinu 20-26°C. Þessir eru ræktaðir og því ekki eitraðir eins og í náttúrunni. En í náttúrinnu eru þeir með þeim eitruðustu. Geta verið margir saman í búri en vilja gott pláss til að hreyfa sig og þurfa hátt rakastig.

Tegund: Splash-backed Poison Frog - Red L
Stærð: 3 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

adelphobates Instagram posts (photos and videos) - Picuki.com

Umönnunarleiðbeiningar.

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg