Turbelle® Classic 4002 – 3700l/h
Turbelle® Classic
miðflóttaaflsdælurnar voru fyrstu dælurnar gagngert hannaðar fyrir
fiskabúr. Margir búreigendur halda enn mikið upp á þær vegna ýmissra
séreiginleika þeirra. Þær sameina hámarksafköst og lága orkunotkun, og
eru auðveldar og öruggar í notkun. Þær geta nánast gengið þurrar og þola
þrýstifiltera. Dælurnar má jafnframt tengja við gangstilli (Singlecontroller 7091) eða fleiri dælur saman á fjölstilli (Multicontroller 7095). Til þess þarf Pump Adapter (7094.400) millistykkið. Turbelle® classic dælurnar
henta bæði í ferskvatnsbúr og sjávarbúr og haldast nánast viðhaldsfríar
í fjölda ára. Þær eru loftkældar þar eð dælan sjálf er að mestu fyrir
ofan vatnsborðið og aðeins inntaks og úttaksrörin sýnileg í búrinu.
Dælunum fylgir festibúnaður úr ryðfríu stáli, flæðisveigja og
inntaksvörn. Þær eru með föstum dæluhraða.
Loftkældar - enginn hiti fer út í búrvatnið.
Aðeins neðri hluti dælunnar er sýnilegur í búrinu.
Rafstýrðar - má tengja við alla Tunze® gangstilla.
Festibúnaður fyrir lóðrétta og lárétta fleti.
Turbelle® Classic 4002.000:
• Dæluhraði: 3.700 l/klst
• Hámarksdæluhæð: 1,45 m
• Afl: 42W
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur.
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|