Dendrobates auratus ‘Microspot’ L

22.540 kr.

SKU: ANADE1112L Flokkur:

Svargrænipílufroskurinn (Dendrobates auratus 'Microspot') er bráðfallegur eiturörvafroskur frá Kosta-Ríka í M-Ameríku. Eftirsóttur vegna litarins - sægrænn með svörtum doppum. Kvendýrið einokar karldýr og parar sig og kemur hrognunum fyrir í bleytu á jörðinni. Karlinn flytur síðan halakörturnar, eina í einu, í vatnspoll hátt í trjám þar sem þær stækka. Halakörturnar nærast á pöddulífi í pollunu og hverja aðra ef ekkert æti er til staðar. Froskurinn nærist á skordýrum ss. maurum, krybbum, ávaxtaflugum og möðkum. Þurfa að vera í röku búri með mosa og plöntum og aðgengi að hreinu vatni. Þetta eru næturdýr eins og aðrir froskar. Karldýrið verður 2,5 cm langt en kvendýrið um 3,8 cm. Mörg litarafbrigði eru til af Dendrobates auratus froskategundunni.

Tegund: Green & Black Dart Frog 'Microspot' L
Stærð: 2,5 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni og háð CITIES leyfi)

Species Spotlight Ep.3 - Dendrobates auratus - YouTube

Umönnunarleiðbeiningar

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg