Dendrobates auratus ‘Albino’ M
Albínópílufroskurinn (Dendrobates auratus 'Albino') er bráðfallegur eiturörvafroskur frá M-Ameríku. Eftirsóttur vegna litarins - bleikleitur með mintugrænu krotmynstri. Kvendýrið einokar karldýr og parar sig og kemur hrognunum fyrir í bleytu á jörðinni. Karlinn flytur síðan halakörturnar, eina í einu, í vatnspoll hátt í trjám þar sem þær stækka. Halakörturnar nærast á pöddulífi í pollunu og hverja aðra ef ekkert æti er til staðar. Froskurinn nærist á skordýrum ss. maurum, krybbum, ávaxtaflugum og möðkum. Þurfa að vera í röku búri með mosa og plöntum og aðgengi að hreinu vatni. Þetta eru næturdýr eins og aðrir froskar. Karldýrið verður 3 cm langt en kvendýrið um 4,1 cm. Mörg litarafbrigði eru til af Dendrobates auratus froskategundunni.
Tegund: Green & Black Dart Frog 'Albino' M
Stærð: 2 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni og háð CITIES leyfi)
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|