Phyllomedusa hypochondrialis M

14.290 kr.

SKU: ANATF1701M Flokkur:

Tígrislappa apafroskurinn (Phyllomedusa hypochondrialis) er einstaklega laglegur og mjög sjaldgæfur froskur úr hitabeltisskógum Suður-Ameríku. Hann er ljósgræn með tígrismunstraðan kvið og lappir. Augun eru grá. Karldýrið verður um 4 til 5 cm en kvendýrið 6,5 cm langt. Ungviðið er brúnna en fær þessa sterku liti með aldrinum. Heldur sér aðallega í trjágróðri og leggst oft saman til að fela sig þar milli mála. Veiðir sér til matar þegar fer að dimma á kvöldin og nærist á hefðbundnum froskamat þ.e. engisprettum, bjöllum, möðkum, mölflugum. Froskurinn vill vera í röku umhverfi (60-70% raki) með aðgang að hreinu vatni. Botnlag má vera mold, gróf en slétt möl, börkur eða mosi. Vill hafa felustaði ss. steina eða viðarbúta og trjágreinar (plastplöntur) til að klifra í. Búrið þarf að vera vel lokað og loftræst. Hrygnir um 70 hrognum í klasa á laufblaði fyir ofan vatnspoll. Halakörturnar detta ofan í vatnið eftir klak.

Tegund: Northern Orange-legged Leaf Frog M
Stærð: 3-3,5 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Phyllomedusa hypochondrialis (Anfibios de (Amphibians of) Sabanalarga, Casanare, Colombia.) · iNaturalist

Umönnunarleiðbeiningar/fróðleikur

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg