36.290 kr.

SKU: ANATF1502L Flokkur:

Perú pokafroskurinn (Gastrotheca peruana) er einstaklega merkilegur trjáfroskur sem finnst í fjallaskóglendi Suður-Perú. Karldýrið færir frjóvguð eggin frá endaþarm kvendýrsins og kemur þeim fyrir í húðpoka á bakinu hennar þar sem þroskast næstu 5-6 vikurnar á halakörtustígið. Þá er þeim komið fyrir í pollum þar sem þeir vaxa og umbreytast í litla froska. Froskurinn vill vera í röku umhverfi (60-70% raki) með aðgang að hreinu vatni. Botnlag má vera mold, gróf en slétt möl, börkur eða mosi. Vill hafa felustaði ss. steina eða viðarbúta og trjágreinar (plastplöntur) til að klifra í. Búrið þarf að vera vel lokað og loftræst. Verða um 4,8 cm langir, kvendýrið stærra. Karldýrið er grænleitara.

Tegund: Peru Marsupial Tree Frog L
Stærð: 4-5 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Photo Ark Home Peru Marsupial Frog | National Geographic Society

Umönnunarleiðbeiningar/fróðleikur.

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg