7.190 kr.

SKU: ANARF1108L Flokkur:

Hallowell seffroskurinn (Hyperolius concolor) er algengur og snotur lítill trjáfroskur frá miðhluta Afríku. Þetta er ein af fáum froskategundum þar sem litamunur er á kynjum, og ein af fáum þar sem froskurinn getur skipt um kyn eftir þörfum. Karldýrið er allajafna grænleitt en kvendýrið brúnt með ljósum doppum. Litir eru þó breytilegir. Froskurinn vill vera í röku umhverfi (60-70% raki) með aðgang að hreinu vatni í grunnri skál. Botnlag má vera mold, gróf en slétt möl, börkur eða mosi. Vill hafa felustaði ss. steina eða viðarbúta og greinar til að klifra í. Þess vegna er gott að búrið sé hátt, enda froskurinn oftast uppi í trjánum. Þetta er auðveldur byrjendafroskur. Nærast á skordýrum, engisprettum, mjölormum, möðkum og þessu líkt. Best að fóðra vel á 2-3 daga fresti, en ungviði þarf að fóðra oftar. Kvendýrið er töluvert stærra en karldýrið sem verður um 2,5 cm langt. Geta orðið nokkuð langlífir.

Tegund: Hallowell's Sedge/Variable Reed Frog L
Stærð: 2 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Do Elephants Support Frogs? - Museum für Naturkunde Berlin — Google Arts & Culture

Umönnunarleiðbeiningar

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg