Dendrobates tinctorius ‘Alanis’ M

20.340 kr.

SKU: ANADE1202M Flokkur:

Alanis pílufroskurinn (Dendrobates tinctorius 'Alanis') er bráðfallegur eiturörvafroskur frá  Súrinam. Eftirsóttur vegna litarins - svartur með gullum skellum og bláæðóttar lappir. Fínn byrjendafroskur. Kvendýrið einokar karldýr, slást innbyrðis um hann. Kvendýrið hrygnar í litlum polli og karldýrið frjóvgar eggin. Um 5-10 afkvæmi fæðast og karldýrið gætir þeirra. Halakörturnar nærast á pöddulífi í pollunum og hverja aðra ef ekkert æti er til staðar. Froskurinn nærist á skordýrum ss. maurum, krybbum, ávaxtaflugum og möðkum. Þurfa að vera í röku búri með mosa og plöntum og aðgengi að hreinu vatni. Þetta eru næturdýr eins og aðrir froskar. Karldýrið verður 4,5 cm langt en kvendýrið aðeins stærra. Lifa upp undir 10 ár í búrum. Ræktaðir í EU.

Tegund: Alanis Dyeing Poison Frog M
Stærð: 2-3 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni og háð CITIES leyfi)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg