Dendrobates leucomelas ‘Guyana Banded’ M

21.440 kr.

SKU: ANADE1304M Flokkur:

Grænfætti bíflugna pílufroskurinn (Dendrobates leucomelas 'Guyana Banded') er bráðfallegur eiturörvafroskur frá  Brasilíu. Eftirsóttur vegna litarins - svartur undir en gulflekkóttur yfir bak og höfuð. Þetta afbrigði er með breitt gult band þvert yfir bakið. Kvendýrið einokar karldýr og parar sig og kemur hrognunum fyrir í bleytu á jörðinni. Karlinn flytur síðan halakörturnar, eina í einu, í vatnspoll hátt í trjám þar sem þær stækka. Halakörturnar nærast á pöddulífi í pollunu og hverja aðra ef ekkert æti er til staðar. Froskurinn nærist á skordýrum ss. maurum, krybbum, ávaxtaflugum og möðkum. Þurfa að vera í röku búri með mosa og plöntum og aðgengi að hreinu vatni. Þetta eru næturdýr eins og aðrir froskar. Karldýrið verður 3,8 cm langt en kvendýrið um 5 cm langt. Má ekki vera í of heitu umhverfi - helst á bilinu 20-26°C. Þessir eru ræktaðir í EU og því ekki eitraðir eins og í náttúrunni. Geta verið margir saman í búri en vilja gott pláss til að hreyfa sig og þurfa hátt rakastig.

Tegund: Guyana Banded Bumble Bee Dart Frog M

Stærð: 2-2,5 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni og háð CITIES leyfi)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg