Ranitomeya imitator ‘Nominate’ M
Hermipílufroskurinn (Ranitomeya imitator 'Nominate') er laglegur eiturörvafroskur frá NA-Perú. Eftirsóttur vegna litarins - höfuð og búkur málmgrænn með stórum svörtum blettum, kviður og lappir grænar með svörtum freknum. Kvendýrið einokar karldýr og parar sig og kemur hrognunum (3-8 í goti) fyrir í röku undirlagi á jörðinni. Karlinn flytur síðan halakörturnar, eina í einu, í vatnspoll þar sem þær stækka. Halakörturnar nærast á pöddulífi í pollunu og hverja aðra ef ekkert æti er til staðar. Froskurinn nærist á skordýrum ss. maurum, krybbum, ávaxtaflugum og möðkum. Þurfa að vera í röku búri með mosa og plöntum og aðgengi að hreinu vatni. Þetta eru næturdýr eins og aðrir froskar. Verða um 2,5 cm á lengd, bæði kynin svipuð að stærð.
Tegund: Mimic Poison Frog 'Nominate' M
Stærð: 1,5 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni og háð CITIES leyfi)
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|