Goldfish Formula 120g – UPPSELT!

2.190 kr.

SKU: GOLD-125 Flokkur:

Byltingakennt fóður frá New Life Spectrum. Einfaldlega vandaðasta og besta fiskafóðrið í heiminum! Aðeins er notast við hágæðahráefni á borð við krill-átu og síld, frekar en hefðbundið fiskimjöl eins og flestir aðrir framleiðendur, til að tryggja hámarksnæringu og hreysti. Hvort sem um er að ræða samfélagsbúr eða sérhæft siklíðubúr uppfyllir New Life Spectrum þarfir allra fiska - kjötæta, grænmetisæta og alæta. Fjórir náttúrulegir litaukar í fóðrinu, m.a. spirúlína þörungur, tryggja að fiskurinn skarti fegurstu liti og viðbættar fiskiolíur og hvítlaukur tryggja bestu heilsu og sjúkdómsviðnám. Engin hormón eru notuð í fóðrinu. Reyndu og þú sérð mun innan tíu daga!!

Goldfish Formula er fyrir alla meðalstóra gullfiska. Hægsökkvandi kögglar draga verulega úr hættunni á að skrautgullfiskar gleypi loft við fóðrun og fái meltingartruflanir eins og oft er raunin sé þeim gefið flögufóður. Þótt gullfiskar og koiar séu grænmetis- og þörungaætur þá éta þeir einnig mikið af vatnalífverum til að fá nauðsynleg prótein. Búrlíf tryggir yfirleitt ekki nægt framboð af þörungum til að mæta þessari þörf en samsetning New Life Spectrum Goldfish Formula gerir það hins vegar og svo um munar!

Stærð og lögun: 3 mm hægsökkvandi kögglar.
Magn: 120 g.

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg