Congo African Grey (Máni) – SELDUR!

260.000 kr.

Kongó grápáfinn (Psittacus erithacus erithacus) nýtur fádæma vinsælda, enda með afbrigðum klár og klókur. Hann getur náð orðaforða allt að þúsund orðum og lært að tjá langanir og hugsanir. Þetta er frekar hlédrægur fugl að eðlisfari og þarf natni til að hann verði félagslyndur. Nokkuð hljóður og dagfarsprúður. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar nokkuð og þarf góða næringu þ.e. fjölbreytt úrval fræja og pálmahnetur, og auðvitað grænmeti og ávexti. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/congo_african_grey.html

Máni er 11 ára handmataður CAG, fluttur inn frá Hollandi. Fuglinum fylgir grátt ferkantað búr frá Montana Cages (svipað og að ofan), leikstandur, ferðabúr ásamt töluverðu af dóti. Máni er mjög góður talfugl og góður við karlmenn sem við hann vilja tala. Hann tekur karlmenn sem sagt fram yfir konur. Hann er til sölu vegna breyttra aðstæðna. Máni hefur ekki verið kyngreinur og er trúlegast kvenfugl þ.e. Mána!
Stærð: 33 cm.
Lífaldur: 50-70 ár.
Verð: 260.000 kr með búri, ferðabúri, leikstandi og leikdóti - VISA RAÐGREIÐSLUR Í BOÐI! - SELDUR!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg