Koi Kohaku Asia 7-10
Kohaku koi gullfiskurinn (Cyprinus carpio 'Koi Kohaku Asia') er ræktunarafbrigði af almenna vatnakarfanum A-Asíu og er kaldavatnsfiskur. Nafnið koi merkir karfi á japönsku, og kohaku merkir rauður og hvítur, en það er litur þessa afbrigðis. Hann er með óregulegar rauðar skellur á bakinu eingöngu og ekki samfelldar. Hann er af Gosanke koi ættinni. Hann kann best við sig í rúmgóðu búri, minnst 500 lítra, þar eð hann getur orðið 70 cm langur og lifað marga áratugi. Rótar mikið eftir æti í búrbotninum. Vill fljótandi fóður en étur líka sökkvandi fóður. Best er að gefa Spectrum Goldfish fóðrið fyrst í stað. Og síðan Spectrum Koi fóðrið þegar þeir stækka. Gott er að salta í búrin með gullfiskasaltinu frá SeaChem. Vaxa hratt við bestu skilyrði og geta náð fullri stærð á 3-4 árum.
Tegund: Kohaku Classic Koi 7-10
Stærð: 7-10 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|