Congo African Grey (Jói) – SELDUR
Kongó grápáfinn (Psittacus erithacus erithacus) nýtur fádæma vinsælda, enda með afbrigðum klár og klókur. Hann getur náð orðaforða allt að þúsund orðum og lært að tjá langanir og hugsanir. Þetta er frekar hlédrægur fugl að eðlisfari og þarf natni til að hann verði félagslyndur. Nokkuð hljóður og dagfarsprúður. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar nokkuð og þarf góða næringu þ.e. fjölbreytt úrval fræja og pálmahnetur, og auðvitað grænmeti og ávexti.
Jói er 3ja og hálfs árs gamall handmataður CAG, fluttur inn frá Hollandi. Fuglinum fylgir nýtt hvítgrátt Brazil búr frá Montana Cages (sjá að ofan), ásamt töluvert af dóti. Jói er mjög góður talfugl og kjaftar á honum hver tuskan. Hann er helst fyrir karlmenn eða viljasterkar konur!. Hann er til sölu vegna veikinda eiganda. Fuglinn er fínn í fiðrinu og elskar pálmahnetur! Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/congo_african_grey.html
Stærð: 33 cm.
Lífaldur: 50-70 ár.
Verð: 250.000 kr með búri og öllu dótinu - SELDUR!
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|