Blue & Gold Macaw (Echo) – SELD!

300.000 kr.

Bláguli arinn (Ara ararauna) nýtur
mikilla vinsælda, enda stór og fjörmikill stríðnispúki. Hann er bráðgreindur og hefur
heilmikla talgetu og auðvelt er að kenna honum kúnstir. Þetta er
ákveðinn fugl með mikla leikþörf. Hann er nokkuð hljóður
en getur gefið frá sér
mjög hávær öskur ef honum leiðist eða er vanræktur. Þarf nóg til að
dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar litið og þarf góða næringu
þ.e. gott úrval fræja, pálmahnetur, eggjafóður og auðvitað grænmeti, ávexti og margs konar mannmat. Pantanir í síma 699 3344. Nánari
upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/blue___gold_macaw.html

Hún Echo verður 5
ára í mars og er handmötuð, innflutt frá Hollandi. Hún talar töluvert og hefur ýmsa skemmtilega takta. Hún kemur til flestra, hvort heldur karlmanna eða kvenna. og lætur þá sem hún er hrifin af klóra sér og klappa um allt - en það eru þó oftar konur. Echo er
til sölu af óviðráðanlegum ástæðum. Henni fylgir stórt og mikið hvítt búr frá Kings Cages. Búrið er á 181,5 cm á hæð, 115,5 cm á lengd og 73,5 cm á breidd. Rimlabil er 2,5 cm að ofan en 4 cm á hliðum. Þá fylgir fuglastandur frá Avian Adventures og hellingur af fínu dóti. Hún getur verið svolítið óörugg á nýju heimili og gargað töluvert í fyrstu en það hættir síðan að vera óeðlilega mikið þegr hún hefur vanist breytingunni.
Stærð: 86 cm.
Lífaldur: 70-100 ár.
Verð: 300.000 kr ásamt búri, dóti og standi - SELD!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg