Green-winged Macaw (Húgó)
Grænvængjaði arinn (Ara chloroptera) nýtur mikilla vinsælda, enda stór og fjörmikill stríðnispúki. Hann er bráðgreindur og hefur heilmikla talgetu og auðvelt er að kenna honum kúnstir. Þetta er ákveðinn fugl með gríðarmikla leikþörf. Hann er nokkuð hljóður en getur gefið frá sér mjög hávær öskur ef honum leiðist eða er vanræktur. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar litið og þarf góða næringu þ.e. gott úrval fræja, pálmahnetur, eggjafóður og auðvitað grænmeti, ávexti og margs konar mannamat. Pantanir í síma 699 3344. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/green-winged_macaw.html
Hann Húgó er 12 ára, handmataður og fæddur á Íslandi 2002. Hann talar töluvert og hefur ýmsa skemmtilega takta. Hann kemur til flestra, hvort heldur karlmanna eða kvenna, og lætur þá sem hann er hrifinn af klóra sér og klappa um allt. Húgó er þrælskemmtilegur fugl. Honum fylgir stórt og mikið grátt búr frá Kings Cages (eins og á myndinni). Búrið er á 181,5 cm á hæð, 115,5 cm á lengd og 73,5 cm á breidd. Rimlabil er 2,5 cm að ofan en 4 cm á hliðum. Þá fylgir stór fuglastandur og dót. Stærð: 90 cm.
Lífaldur: 70-100 ár.
Verð: 390.000 kr ásamt búri, dóti og standi.
Aðrar upplýsingar
| Þyngd | 0.00 kg |
|---|




