Orange-winged Amazon Pair (Ravisen og Travis) – SELD!
Óransvængjaði amasoninn (Amazona amazonica amazonica) er vinsæll félagi, enda litfagur og greindur stórfugl. Hann hefur nokkra talgetu og auðvelt er að kenna honum kúnstir. Þetta er félagslyndur og lífsglaður fugl sem hefur mikla leikþörf. Frekar hávær, einkum kvölds og morgna. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar litið og þarf góða næringu þ.e. gott úrval fræja, pálmahnetur, eggjafóður og mikið af grænmeti og ávöxtum. Pantanir í síma 699 3344. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/orange-winged_amazon.html
Ravisen og Travis eru staðfest par og ástfangin upp fyrir haus. Þau eru fædd 2002, nokkuð gæf en samt ótamin. Þau voru í Eden í Hveragerði í nokkur ár, og koma bæði frá Bretlandi. Þeim fylgir stórt búr, ferðabúr og varpkassi. Þau eru nokkuð prúð en geta látið í sér heyra kvölds og morgna. Hafa legið nokkrum sinnu á eggjum en ekkert komið úr þeim enn þá.
Stærð: 31 cm.
Lífaldur: 50-70 ár.
Verð: 180.000 kr ásamt búri og ferðabúri. - VISA raðgreiðslur í boði til 3ja ára. - SELD!
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|