Congo African Grey (Torres) – SELDUR!

270.000 kr.

Kongó grápáfinn (Psittacus erithacus erithacus) nýtur fádæma vinsælda, enda með afbrigðum klár og klókur. Hann getur náð orðaforða allt að þúsund orðum og lært að tjá langanir og hugsanir. Þetta er frekar hlédrægur fugl að eðlisfari og þarf natni til að hann verði félagslyndur. Nokkuð hljóður og dagfarsprúður. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar nokkuð og þarf góða næringu þ.e. fjölbreytt úrval fræja og pálmahnetur, og auðvitað grænmeti og ávexti.

Torres er 5 ára handmataður og kyngreindur CAG, fluttur inn frá Bretlandi. Fuglinum fylgir grágrænt San Diego búr frá Montana Cages (http://verslun.tjorvar.is/product_info.php?products_id=1025), standur (sjá að ofan) og ferðabúr. Torres talar töluvert og þykir mjög gaman af að kúra á bringu eiganda síns. Hann er góður jafnt við karla sem konur. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/congo_african_grey.html
Stærð: 33 cm.
Lífaldur: 50-70 ár.
Verð: 270.000 kr með búri, standi, ferðabúri - SELDUR!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg