Congo African Grey (Arró) – SELDUR!

230.000 kr.

Kongó grápáfinn (Psittacus erithacus erithacus) nýtur
fádæma vinsælda, enda með afbrigðum klár og klókur. Hann getur náð
orðaforða allt að þúsund orðum og lært að tjá langanir og hugsanir.
Þetta er frekar hlédrægur fugl að eðlisfari og þarf natni til að hann
verði félagslyndur. Nokkuð hljóður og dagfarsprúður. Þarf nóg til að
dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar nokkuð og þarf góða næringu
þ.e. fjölbreytt úrval fræja og pálmahnetur, og auðvitað grænmeti og
ávexti.

Arró er 4ra ára handmataður CAG, fluttur inn frá Hollandi. Fuglinum fylgir
grátt Brazil búr frá Montana Cages (sjá að
ofan), ásamt töluvert af
dóti. Arró er ágætur talfugl  og góður við flesta sem við hann vija tala. Hann er
einungis til sölu vegna breyttra fjölskylduaðstæðna en hann hefur verið á sama heimili frá því að hann kom til landsins. Nánari
upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/congo_african_grey.html
Stærð: 33 cm.
Lífaldur: 50-70 ár.
Verð: 230.000 kr með búri og leikdóti - SELDUR!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg