Microsorum pteropus ‘Trident’ – on Wood

6.480 kr.

SKU: 008G YWS Flokkur:

Microsorum pteropus 'Trident' er fallegt ræktunarafbrigði af javaburknanum frá Asíu og verður 15-20 cm hátt. Blöðin er mun grennri en annars. Hentar vel fyrir byrjendur sem og lengra komna, bæði í örbúr og stór. Nafnið 'Trident' merkir þríforkur og gefur til kynna að blöðin eru þrískipt eða jafnvel margskipt. Binda má burknann við rót eða stein með fiskigirni uns hann hefur fest sig. Ef hann er gróðursettur í botnlaginu þarf að gæta þess að mölin hylji ekki jarðstöngulinn annars rotnar hann. Jurtina má auðveldlega fjölga með því að kljúfa jarðstöngulinn langsöm eða klippa af litlu græðlingana sem vaxa út úr eldri blöðum. Seld á fenjaviðarbút (sjálf fest). Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/microsorum_pteropus_.html
Tegund: Microsorum pteropus 'Trident'
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Leiðbeiningamyndskeið: Microsorum pteropus 'Windeløv'

 

Plant info

Type:Rhizomatous
Origin:Cultivar
Growth rate:Slow
Height:15 - 20+
Light demand:Low
CO2 :Low