Tridacna maxima ‘Yellow/Gold’ 4cm

17.590 kr.

SKU: CLA-TMYG-043022 Flokkur:

Small Giant Clam samlokuskelin (Tridacna maxima 'Yellow/Gold') er gríðarfalleg viðbót í rólegu kórallabúri. Finnst víða í Indlandshafi og Kyrrahafi. Hún þekkist á sléttri, ílangri skelinni. Möttullinn er nokkuð breiður og getur verið gylltur, blár og grænn og oft með skellu- eða doppumynstri, yfirleitt með sterkum bláum eða grænum lit.  Þetta er ein algengasta og minnsta Tridacna samlokan. Hún þarf sterka flúr- eða málmhalógen lýsingu. Hún getur 2-3 faldast að stærð á ári við réttar aðstæður og verður mest um 20 cm og getur lifað 50-100 ár. Hún þarf 400-480 mg/L í kalkmagni, pH 8,1-8,3 og alkalinity 7-9. Hún stundar ljóstillífun (ljóstillífandi þörungar) og síar æti úr vatni þ.a. það þarf helst að fóðra hana eins og harða kóralla. Gul-gyllt!
Stærð: 4cm - Yellow/Gold!
Afgreiðslutími: 8 vikur (eftir framboði hverju sinni og háð CITIES leyfi)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg