Yellow-crowned Amazon (Emma)
Gulbrýndi amasóninn (Amazona ochrocephala ochrocephala) er mjög vinsæll og fallegur fugl, enda litfagur og bráðgreindur stórfugl. Hann hefur mikla talgetu og auðvelt er að kenna honum kúnstir. Þetta er félagslyndur og lífsglaður fugl sem hefur mikla leikþörf.Getur látið í sig heyra kvölds og morgna. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar litið og þarf góða næringu þ.e. gott úrval fræja, pálmahnetur, eggjafóður og mikið af grænmeti og ávöxtum. Dafnar vel á þurrfóðrinu frá Harrisons. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/yellow-crowned_amazon.html
Hún Emma er fædd í mars 2005 í Hollandi. Hún er handmötuð og gæf en hallari undir konur en karla. Hún er ekki svo hrifin af börnum en er vön fullorðnum. Hún talar töluvert og kann að heilsa með fætinum. Henni fylgir mjög stórt hornbúr (sjá myndir)). Hún er til sölu vegna breyttra aðstæðna eiganda.
Stærð: 37 cm.
Lífaldur: 70-80 ár.
Verð: 350.000 kr ásamt búri - VISA raðgreiðslur í boði til 3ja ára.
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|