Congo African Grey (Rósa) – SELD!

280.000 kr.

Kongó grápáfinn (Psittacus erithacus erithacus) nýtur
fádæma vinsælda, enda með afbrigðum klár og klókur. Hann getur náð
orðaforða allt að þúsund orðum og lært að tjá langanir og hugsanir.
Þetta er frekar hlédrægur fugl að eðlisfari og þarf natni til að hann
verði félagslyndur. Nokkuð hljóður og dagfarsprúður. Þarf nóg til að
dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar nokkuð og þarf góða næringu
þ.e. fjölbreytt úrval fræja og pálmahnetur, og auðvitað grænmeti og
ávexti.

Rósa er
6 ára handmataður CAG, flutt inn frá Bretlandi. Hún hefur verið kyngreind. Henni fylgir grágrænt Haiti búr og Daylite standur frá Montana Cages (sjá að ofan), ferðabúr og mikið af
leikföngum og dóti. Annað minna búr getur einnig fylgt með. Rósa er greinilega hrifnust af karlmönnum og því væri einhleypur karlkynskaupandi ákjósanlegastur! Hún talar helling, leggst á bak og þykir mjög gott að kela. Nánari
upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/congo_african_grey.html
Stærð: 33 cm.
Lífaldur: 50-70 ár.
Verð: 280.000 kr með búri, standi, ferðabúri og leikdóti - SELD!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg