5.390 kr.

SKU: 06965 Flokkur:

Kúbotæ bótían (Botia kubotai) er falleg sniglaæta frá SA-Asíu sem doppumynstrinu. Hún verður um 10 cm löng. Hún er fremur róleg að eðlisfari og hentar því aðeins með rólegum fiskum og botnfiskum. Hængurinn er spengilegri en hrygnan og bæði eru með beinnibbur undir augun sem þau geta sprett út til varnar. Þess vegna er ekki hyggilegt að halda á þeim með berum höndum! Þarf góða felustaði til að troða sér í, einkum sendinn botn. Geta verið stakir en plumma sig best í pörum. Aðalfæðan eru sniglar og fóðurtöflur. Má einnig gefa grænmeti ss. gúrkur. Þola illa lyfjagjöf af því að þær eru hreisturslausar og best að nota saltmeðferðina ef sjúkdómar koma upp. Villtir!
Tegund: Polka-Dot/Angelicus Loach L - Wild
Stærð: 6-7cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg