Congo African Grey (Daisy) – SELD!
Kongó grápáfinn (Psittacus erithacus erithacus) nýtur
fádæma vinsælda, enda með afbrigðum klár og klókur. Hann getur náð
orðaforða allt að þúsund orðum og lært að tjá langanir og hugsanir.
Þetta er frekar hlédrægur fugl að eðlisfari og þarf natni til að hann
verði félagslyndur. Nokkuð hljóður og dagfarsprúður. Þarf nóg til að
dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar nokkuð og þarf góða næringu
þ.e. fjölbreytt úrval fræja og pálmahnetur, og auðvitað grænmeti og
ávexti.
Daisy er 4
ára handmataður CAG, flutt inn frá Hollandi. Henni fylgir grátt Haiti búr frá
Montana Cages (sjá að ofan) og töluvert af
leikföngum og dóti. Rósa Daisy er
ögn hrifnari af karlmönnum en konum en þó ekki illgjörn við þær. Það kjaftar á henni hver tuskan en hún er til sölu vegna breyttra aðstæðna. Hún lítur vel út og er ljósari á litinn en almennt gengur og gerist. Hún hefur aðeins skakkt bit og þarf því að láta snyrta gogginn oftar en venjulega. Hefur haft sömu eigendur frá upphafi. Nánari
upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/congo_african_grey.html
Stærð: 33 cm.
Lífaldur: 50-70 ár.
Verð: 240.000 kr með búri og leikdóti - SELD!
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|