Green-winged Macaw (Dalíla) – SELD!

190.000 kr.

Grænvængjaði arinn (Ara chloroptera) nýtur mikilla vinsælda, enda stór og fjörmikill stríðnispúki. Hann er bráðgreindur og hefur heilmikla talgetu og auðvelt er að kenna honum kúnstir. Þetta er ákveðinn fugl með gríðarmikla leikþörf. Hann er nokkuð hljóður en getur gefið frá sér mjög hávær öskur ef honum leiðist eða er vanræktur. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar litið og þarf góða næringu þ.e. gott úrval fræja, pálmahnetur, eggjafóður og auðvitað grænmeti, ávexti og margs konar mannamat. Pantanir í síma 699 3344. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/green-winged_macaw.html

Dalíla er fædd 1999 í Brasilíu og var flutt til Danmerkur og síðan seld til Íslands. Hún er ekki handmötuð en þiggur mat úr hendi. Hún hefur verpt nokkrum sinnum með karlfugli sömu tegundar. Hún talar aðeins en ekki skýrt og er sérlega dugleg að éta og naga. Hún hefur nagað aðeins í fjaðrirnar sínar.

Stærð: 90 cm.
Lífaldur: 70-100 ár.
Verð: 190.000 kr -  VISA raðgreiðslur í boði til 3ja ára. - SELD!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg