Lutino Red-fronted Kakariki (Kíki) – SELD!

100.000 kr.

SKU: F02612 Flokkur:

Lútínó rauðbrýndi kakaríkinn (Cyanoramphus novaezelandiae) er fallegur, hljóðlátur og leikglaður miðfugl. Hann er sífellt að, klár og klókur. Þetta er þægilegur barnafugl sem getur náð að tala. Kakaríkinn er forvitinn að eðlisfari og félagslyndur, hljóðlátur og jarmar eins og kind. Rykar lítið en finnst gaman að dreifa korninu sínu yfir búrbotninn þar sem hann getur rótað í því. Þarf góða næringu þ.e. fjölbreytt úrval fræja, próteinríkt eggjafóður og auðvitað grænmeti og ávexti. Fæst í nokkrum litarafbrigðum. Pantanir í síma 699 3344. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/red-fronted_kakariki.html

Hún Kíki er rúmlega 2ja ára gamall lútínó rauðbrýndur kakaríki, fædd hérlendis. Hún er handmötuð og pollróleg. Henni fylgir nýlegt Madeir II - Platinum búr og smærra búr. Hún er til sölu vegna breytra aðstæðna eiganda síns. Kíki er voða hrifin af kvenfólki og líka karlkyni þegar hún kynnist því. Góður, hljóðlátur og æpandi gulur fugl. Hefur verið bæði á kornfóðri og étur mikið af ávöxtum og grænmeti. Elskar að fara í bað daglega..
Stærð: 28 cm.
Lífaldur: 15-20 ár.
Verð: 100.000 kr ásamt búrum, ýmsu dóti og fóðri.

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg