Congo African Grey (Elvis)
Kongó grápáfinn (Psittacus erithacus erithacus) nýtur fádæma vinsælda, enda með afbrigðum klár og klókur. Hann getur náð orðaforða allt að þúsund orðum og lært að tjá langanir og hugsanir. Þetta er frekar hlédrægur fugl að eðlisfari og þarf natni til að hann verði félagslyndur. Nokkuð hljóður og dagfarsprúður. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar nokkuð og þarf góða næringu þ.e. fjölbreytt úrval fræja og pálmahnetur, og auðvitað grænmeti og ávexti.
Elvis er 19 ára gamall handmataður CAG, innfluttur frá Bretlandi. Fuglinum fylgir grátt Haiti búr frá Montana Cages ásamt ferðabúri og leikdóti. Elvis er skemmtilegur fugl með mikinn persónuleika. Hann er góður við karla en lítt hrifinn af konum. Hann talar töluvert en meira þegar hann heldur að enginn sjái til hans. Hann er til sölu vegna breyttra aðstæðna. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/congo_african_grey.html
Stærð: 33 cm.
Lífaldur: 50-70 ár.
Verð: 220.000 kr með búri, ferðabúri og dóti. VISA raðgreiðslur í boði til 3ja ára
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|