Fischer’s Lutino/Masked Lovebird Pair (Sóley & Blámi) – SELD!
Fischers dvergpáfinn (Agapornis fischeri) nýtur mikilla vinsælda, enda litríkur og leikglaður smáfugl. Hann hefur litla talgetu en bætir það upp með þrautseigju og útsjónarsemi. Þetta er góður "útbrotsfugl" þ.a. mikilvægt er að loka búrinu vel. Ástargaukurinn er mjög félagslyndur og kelinn en líka afar ákveðinn og hentar því ekki yngri börnum. Nokkuð hljóður en getur gefið frá sér hvell hljóð sem geta farið í taugarnar á viðkvæmum. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar litið og þarf góða næringu þ.e. fjölbreytt úrval fræja, eggjafóður og auðvitað grænmeti og ávexti. Fæst í ýmsum litarafbrigðum. Pantanir í síma 699 3344. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/fischer_s_lovebird.html
Hún Sóley er 5 ára gamall lútínó Fischers ástargaukur og Blámi maki hennar er blár Masked ástargaukur á svipuðum aldri. Þau hafa átt töluvert af ungum síðustu misseri í fjölmörgu litum m.a. hvítir albínóar. Þetta er sem sagt varppar. Þeim fylgir eldra búr með varpkassa. Karlfuglinn hefur plokkað sig aðeins efst á bringunni.
Stærð: 14 cm.
Lífaldur: 15-30 ár.
Verð: 50.000 kr ásamt búri og dóti - SELD!
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|