Blue & Gold Macaw (Ari) – SELDUR!
Bláguli arinn (Ara ararauna) nýtur mikilla vinsælda, enda stór og fjörmikill stríðnispúki. Hann er bráðgreindur og hefur heilmikla talgetu og auðvelt er að kenna honum kúnstir. Þetta er ákveðinn fugl með mikla leikþörf. Hann er nokkuð hljóður en getur gefið frá sér mjög hávær öskur ef honum leiðist eða er vanræktur. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar litið og þarf góða næringu þ.e. gott úrval fræja, pálmahnetur, eggjafóður og auðvitað grænmeti, ávexti og margs konar mannmat. Pantanir í síma 699 3344. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/blue___gold_macaw.html

Ari er 9 ára og handmataður, innfluttur frá Bretlandi. Hann talar mikið og hefur ýmsa skemmtilega takta. Hann kemur til flestra. Ari er þó hrifnari af karlmönnum amk. þessa stundina! Honum fylgir stórt og mikið grátt Grande Playtop búr frá Avian Adventures.
Stærð: 86 cm.
Lífaldur: 70-100 ár.
Verð: 400.000 kr ásamt búri - VISA RAÐGREIÐSLUR Í BOÐI - SELDUR!
Aðrar upplýsingar
| Þyngd | 0.00 kg |
|---|




