Blue & Gold Macaw (Pjakkur) – SELDUR!
Bláguli arinn (Ara ararauna) nýtur mikilla vinsælda, enda stór og fjörmikill stríðnispúki. Hann er bráðgreindur og hefur heilmikla talgetu og auðvelt er að kenna honum kúnstir. Þetta er ákveðinn fugl með mikla leikþörf. Hann er nokkuð hljóður en getur gefið frá sér mjög hávær öskur ef honum leiðist eða er vanræktur. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar litið og þarf góða næringu þ.e. gott úrval fræja, pálmahnetur, eggjafóður og auðvitað grænmeti, ávexti og margs konar mannmat. Pantanir í síma 699 3344. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/blue___gold_macaw.html
Hann Pjakkur er 8 ára og er handmataður, innfluttur frá Hollandi. Hann talar nokkuð og hefur ýmsa skemmtilega takta. Hann kemur til flestra, en er meira fyrir karlmenn. Hlýðir yfirleitt skipunum. Hann vinkar bless með fætinum og vængjum líka ef vel liggur á honum. Honum fylgir stórt og mikið grátt búr frá Kings Cages (eins og á myndinni). Búrið er á 181,5 cm á hæð, 115,5 cm á lengd og 73,5 cm á breidd. Rimlabil er 2,5 cm að ofan en 4 cm á hliðum. Pjakkur hefur verið kyngreindur og fylgir DNA-skjal með honum. Hann hefur reitt sig nokkuð á bringunni en er að fá fjaðrirnar aftur. Mjög skemmtilegur og góður fugl!
Stærð: 86 cm.
Lífaldur: 70-100 ár.
Verð: 350.000 kr ásamt búri. VISA raðgreiðslur í boði til 3ja ár - SELDUR!
Aðrar upplýsingar
| Þyngd | 0.00 kg |
|---|




