Hyla cinerea L
Græni trjáfroskurinn (Hyla cinerea) er algengur og snotur trjáfroskur frá N-Ameríku. Hann er allajafna ljósgrænn á lit með rjómalitaða rák frá munni og að nára. Froskurinn vill vera í röku umhverfi (60-70% raki) með aðgang að hreinu vatni í grunnri skál. Botnlag má vera mold, gróf en slétt möl, börkur eða mosi. Vill hafa felustaði ss. steina eða viðarbúta og greinar til að klifra í. Þess vegna er gott að búrið sé hátt, enda froskurinn oftast uppi í trjánum. Þetta er auðveldur byrjendafroskur. Nærast á skordýrum, mjölormum, möðkum og þessu líkt. Taka einnig vandað þurrfóður ss. JurassiDiet Frog & Newt og fóðurtöflur. Kvendýrið er töluvert stærra en karldýrið sem verður um 6 cm langt. Geta orðið nokkuð langlífir.
Tegund: Green/ North American Green Tree Frog L
Stærð: 2 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 8 vikur (eftir framboði hverju sinni)
Aðrar upplýsingar
Þyngd | 0.00 kg |
---|