4.790 kr.

Ekki til á lager

Mascarene froskurinn (Ptychadena mascareniensis) er laglegur straumlínulaga  froskur víða úr mið- og suðurhluta Afríku. Auðvelt að hugsa um hann sem gæludýr. Hann vill vera í röku umhverfi (60-70% raki) með aðgang að hreinu vatni og líka grunnu sundvatni. Botnlag má vera mold, gróf en slétt möl, börkur eða mosi. Vill hafa felustaði ss. steina eða viðarbúta. Þarf rúmgott búr til að hoppa um í. Nærast á skordýrum ss. mjölormum, möðkum og lirfum. Taka einnig vandað þurrfóður ss. JurassiDiet Frog & Newt og fóðurtöflur. Kvendýrið er töluvert stærra en karldýrið. Verður um 5 cm á lengd. Miklir hopparar. Þekkjast á grænni rák eftir endilöngu bakinu.

Mascarene Ridged Frog (Ptychadena mascareniensis)

Tegund: Mascarene/Mascarene Rocket Frog M
Stærð: 3 cm
Afgreiðslutími: sérpöntunarvara - 2-4 vikur (eftir framboði hverju sinni)

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg