Congo African Grey (Fíóna) – SELD!

260.000 kr.

Kongó grápáfinn (Psittacus erithacus erithacus) nýtur
fádæma vinsælda, enda með afbrigðum klár og klókur. Hann getur náð
orðaforða allt að þúsund orðum og lært að tjá langanir og hugsanir.
Þetta er frekar hlédrægur fugl að eðlisfari og þarf natni til að hann
verði félagslyndur. Nokkuð hljóður og dagfarsprúður. Þarf nóg til að
dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar nokkuð og þarf góða næringu
þ.e. fjölbreytt úrval fræja og pálmahnetur, og auðvitað grænmeti og
ávexti. Nánari
upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/congo_african_grey.html

Fíóna er 8 ára handmataður CAG, flutt inn frá Hollandi. Hún er mjög myndarleg og stór, og falleg í fiðri. Fuglinum fylgir
nýtt grátt Chiquita Playtop Brazil búr frá Avian Adventures (sjá að
ofan), ásamt töluvert af
dóti og ferðabakpoka. Fíóna er afbragðsgóður talfugl og kjaftar á henni hver
tuskan. Hún er hallari undir karlkynið en konur og er mikill karakter.
Hún vill helst sitja bara á öxl eiganda síns allan daginn. Hún hefur verið á sama heimili í rúm 6 ár og til sölu vegna
aldurs eigenda.
Stærð: 33 cm.
Lífaldur: 50-70 ár.
Verð: 280.000 kr með búri, ferðabakpoka og leikdóti - SELD!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg