Blue-fronted Amazon (Ási) – SELDUR!

290.000 kr.

Blábrýndi amasoninn (Amazona aestiva aestiva) er mjög vinsæll félagi, enda litfagur og bráðgreindur stórfugl. Hann hefur mikla talgetu og auðvelt er að kenna honum kúnstir. Þetta er félagslyndur og lífsglaður fugl sem hefur mikla leikþörf. Frekar hávær, einkum kvölds og morgna. Þarf nóg til að dunda sig við ss. leikföng og nagdót. Rykar litið og þarf góða næringu þ.e. gott úrval fræja, pálmahnetur, eggjafóður og mikið af grænmeti og ávöxtum. Pantanir í síma 699 3344. Nánari upplýsingar: http://www.tjorvar.is/html/blue-fronted_amazon.html

Hann Ási er 11 ára gamall, vel taminn og kyngreindur karlfugl sem var fluttur inn frá Bretlandi. Hann er líflegur eins og aðrir af sömu tegund. Hann talar og röflar heilan helling og er oft mjög skýrmæltur. Þá þykir honum líka gaman að syngja. Ási er til sölu vegna breyttra aðstæðna eiganda. Þetta er stórfínn fugl og skemmtilegur. Honum finnst gaman að leika og vill gjarnan fylgjast með öllu í umhverfinu. Hænist að öllum, körlum sem konum. Er á Harrison's þurrfóðri en líka stórfuglafóðri. Mjög laglegur og fríður fugl. Honum fylgir stórt gyllt Max 11 búr á standi frá Ferplast (sjá mynd). Búrið er opnanlegt að ofan. Hann Ási er sérstakur að því leytinu að hann er með lútínu-gen í sér sem þýðir að meira en helmingslíkur eru á að hann eignist gula unga (sem hann hefur reyndar gert nokkrum sinnum). Hann hefur verið hjá sama eiganda frá upphafi þ.e. í 10 ár.
Stærð: 37 cm.
Lífaldur: 70-100 ár.
Verð: 290.000 kr ásamt búri - SELDUR!

Aðrar upplýsingar

Þyngd0.00 kg